Pingdom Check

Hurghada og El Gouna, Egyptaland

Paradís við Rauðahafsströndina

Fararstjórar eru: Guðrún Erla Tómasdóttir og Héðinn Svarfdal Björnsson.

Hurghada í Egyptalandi er vinsæll, framandi og spennandi áfangastaður við Rauðahafið og El Gouna er lítil paradís, um 25 km norður af miðbæ Hurghada.
Báðir staðir hafa sinn sjarma og bjóða upp á lúxus afþreyingu, gistingu og umhverfi.
Hurghada er borg sem teygir sig meðfram strandlengjunni og þar er að finna fjölbreytta þjónustu.
El Gouna er nýrra svæði sem er staðsett við Rauðahafsströndina og byggt upp með ferðaþjónustu í huga. Það er rómað fyrir lúxushótel og afslappað andrúmsloft.
Á báðum stöðum er hægt að stunda ýmis konar vatnasport eins og köfun og snorkl og uppgötva litríkt sjávarlíf og kóralrif.

Sagan

Hurghada var smábær þar sem flestir íbúar stunduðu fiskveiðar, en upp úr 1970 hófst vöxtur í ferðaþjónustu þar sem svæðið þótti fallegt og loftslagið gott. Með tímanum fjölgaði verslunar- og þjónustufyrirtækjum sem höfðu það að markmiði að skapa ævintýralegt frí frá hversdagsleikanum.

El Gouna svæðið er glæsilegur ferðamannastaður í eigu egypska auðjöfursins Samih Sawiris og þar er sérstök áhersla lögð á glæsilega innviði, vellíðan gesta og hágæða aðstöðu. Svæðið samanstendur af fjölda lóna og lítilla eyja sem eru tengdar saman með brúm og mynda fallega heild.

Afþreying á svæðinu

Fjölbreytt afþreying er í boði á báðum stöðum. Í Hurghada borg er fallegur miðbær með verslunum, veitingastöðum, kaffihúsum og börum.
El Gouna er þekkt fyrir flotta umhverfishönnun, ótrúlegt útsýni, úrval veitingastaða, heilsulindir, golfvelli, leikvelli og ýmsa skemmtun fyrir allan aldur. Markmiðið var að skapa umgjörð sem fellur vel að umhverfinu.

Fyrir þá sem elska útivist og náttúru er vatnasportið ómissandi á báðum stöðum, í kristaltærum sjónum, enda eru kóralrifin í Rauðahafinu heimsþekkt fyrir fjölbreytt lífríki.

Eyðimerkurferðirnar í nágrenni Hurghada og El Gouna eru krydd í tilveruna og fjör að þeytast um sandöldur á skemmtilegum farartækjum. Þessar ferðir eru einstakt tækifæri til að kanna töfrandi landslagið sem umlykur þessa staði. Útsýnið er stórbrotið, umhverfið dularfullt og fegurðin hrífandi.

Strendurnar við Rauðahaf

Rauðahafið er þekkt fyrir fagurbláan sjó, heitt loftslag allt árið og hvítar sandstrendur sem laða til sín gesti frá öllum heimshornum. Strendurnar í Hurghada eru dásamlegar með ýmiskonar þjónustu fyrir alla aldurshópa. Í El Gouna er andrúmsloftið aðeins rólegra og þar má gera ráð fyrir afslöppun og góðri þjónustu.

Báðir staðir eru eins konar nirvana fyrir þá sem kjósa strandlífið.

Egypska menningin teygir sig meira en 5000 ár aftur í tímann og er lifandi, spennandi og margbreytileg. Umfram allt er Egyptaland vafið dulúð náttúrunnar og sögulegum töfrum sem laða að sér ferðafólk.

Valkvæðar skoðunarferðir

Heilsdagsferð til Luxor 

Þessi heilsdagsferð til Luxor er ómissandi fyrir alla sem vilja upplifa hina dásamlegu sögu og menningu forn-Egyptalands. Ferðin hefst snemma morguns og við ökum sem leið liggur að Luxor, sem tekur um 4 klst. 
Þegar komið er til Luxor, sem áður var höfuðborg Egypta, heimsækjum við Dali konunganna, sem er eitt helsta minnismerki um konunglegu ættirnar sem ríktu í gamla Egyptalandi. Þetta svæði er heimkynni margra af frægustu konungum Egyptalands, þar á meðal Tutankhamon, og farþegar fá tækifæri til að skoða stórbrotin grafhýsi þeirra, sem eru prýdd með glæsilegum veggmyndum sem segja frá lífi þeirra og dauða. 
Næst er heimsókn að Memnonstyttunum – tveimur stórum, frægum styttum sem standa sem vörð við gamla hofið Amenhotep III.  Þaðan heldur ferðin áfram til Karnak-hofsins, sem miklar hofrústir frá tíma Egyptalands hins forna er að finna. Þetta mikla helgidómssvæði var reist til heiðurs guðinum Amun-Ra.
Ferðin endar á heimsókn í Luxor-hofið, sem einnig var helgað guðinum Amun-Ra og hefur verið vettvangur mikilla trúarathafna í gegnum tíðina. Þetta hof er sérstaklega þekkt fyrir tvær frægar styttur við innganginn og stórbrotnar súlur sem skarta himneskum myndum. 
Eftir þessa mögnuðu ferð í gegnum söguna verður ekið aftur til Hurghada með ógleymanlegar minningar og nýja þekkingu um forn-Egypta og þeirra menningu í farteskinu. 

“Glass Boat” sigling 

Njótum töfrandi þriggja klukkustunda ævintýrs um Rauðahafið á báti með glerbotni, þar sem tækifæri gefst til að upplifa undur neðansjávarheimsins. Siglt verður yfir litrík kóralrif þar sem við sjáum fjölbreytt lífríki hafsins og skoðum litríka og framandi fiska sem synda undir bátnum.
Ferðin hentar öllum aldurshópum og er frábær kostur fyrir fjölskyldur, pör eða einstaklinga sem vilja upplifa náttúrufegurð hafsins á afslappandi og öruggan hátt. Ekki missa af þessu ógleymanlega tækifæri til að kynnast heillandi heimi neðansjávar í Rauðahafinu – án þess að þurfa að kafa! 

Heilsdags sigling frá Hurghada með hádegisverði 

Komdu með í ógleymanlega siglingu um töfrandi Rauðahafið. Ferðin hefst snemma morguns þegar við stígum um borð í þægilegan og vel búinn bát með reyndri áhöfn sem sér um að dagurinn verði bæði afslappandi og skemmtilegur. Meðal hápunkta ferðarinnar er ógleymanlegt tækifæri til að synda með höfrungum í sínu náttúrulega umhverfi – reynsla sem margir nefna sem eitt það magnaðasta sem þeir hafa upplifað.
Einnig býðst okkur að kafa eða snorkla yfir litríkum kóralrifjum þar sem sjá má fjölbreytt og litríkt sjávarlíf. Fyrir þá sem kjósa afslöppun er einnig hægt að sitja í sólinni á þilfarinu og njóta útsýnisins yfir opið hafið. Hádegisverður er borinn fram um borð. 
Þessi ferð hentar öllum og sameinar náttúruupplifun, afslöppun og góða þjónustu í einni ógleymanlegri dagsferð. 

Fjórhjólafjör í eyðimörkinni við sólarupprás  

Fjórhjólaferð við sólarupprás í eyðimörkinni við Hurghada er ógleymanlegt ævintýri. Þessi ferð er ein sú skemmtilegasta sem í boði er í Hurghada og veitir farþegum einstakt tækifæri til að skoða heillandi eyðimerkurlandslag Egyptalands í fyrstu birtu dagsins.
Ferðin hefst árla morguns, þegar enn er hljótt og kyrrt í borginni. Farþegar eru sóttir á hótel og ekið að upphafsstað ferðarinnar í útjaðri eyðimerkurinnar. 
Síðan hefst aksturinn í gegnum víðáttumikla eyðimörkina, undir leiðsögn reyndra fararstjóra. Við ökum í hópi eftir sandbreiðum og stígum, með stoppi til að taka myndir og njóta sólarupprásarinnar.
Þessi ferð er fullkomin blanda af spennu, náttúru og friðsæld og hentar öllum sem vilja byrja daginn á einstakan hátt – með skemmtun og stórkostlegu útsýni. 

Sólarlags Safari 

Í þessari mögnuðu safaríferð skoðum við austurhluta eyðimerkurinnar í Egyptalandi. 
Ferðin hefst þegar farþegar eru sóttir á hótel og keyrðir út í eyðimörkina þar sem við fáum tækifæri til að upplifa hina víðáttumiklu og kyrrlátu náttúru þessa svæðis. Farið verður um eyðimörkina á jeppum þar sem njóta má útsýnis yfir endalausar sandbreiður og stórbrotnar fjallshlíðar. 
Á ferðinni er stoppað í Bedúínabyggð þar sem við kynnumst gamalli menningu Bedúína og þeirra hefðum. Þar fáum við að sjá hvernig þessi forni ættbálkur hefur aðlagað sig að lífinu í eyðimörkinni og nýtt sér auðlindir náttúrunnar. 
Einn af hápunktum ferðarinnar er svo kamelreið við sólarlagið.  

Köfunarferð í Hurghada 

Hurghada er eitt vinsælasta strandsvæði Egyptalands og draumastaður fyrir áhugafólk um köfun og sjávarlíf. Þessi heilsdags köfunarferð býður þátttakendum upp á tækifæri til að kafa niður í kristaltært Rauðahafið og upplifa einstakan neðansjávarheim – með litríkum kóralrifjum, fjölbreyttu sjávarlífi og jafnvel fornum skipsflökum sem liggja á botni hafsins.
Ferðin hefst að morgni dags við höfnina í Hurghada. Leiðsögumenn veita ítarlega öryggisfræðslu og kynningu á köfunarbúnaði áður en lagt er af stað. 
Þessi ferð hentar jafnt byrjendum sem reyndum köfurum og er frábært tækifæri til að upplifa náttúruundur Rauðahafsins á einstakan hátt – örugglega dagur sem lætur engan ósnortinn. 

Hagnýtar upplýsingar

Vegabréfsáritun

Sækja þarf um visa áritun til Egyptalands. Áritunin kostar 25$. Nánari upplýsingar koma síðar. 

Vegabréf

Vegabréf verða að gilda minnst 6 mánuði fram yfir áætlaða heimkomu

Akstur til og frá flugvelli

Akstur til og frá flugvelli er valkvæð þjónusta sem hægt er að bæta við pakkaferðina. Verð á akstrinum er 2000 kr á mann aðra leið. 

Stærð og íbúafjöldi

Egyptaland er um 1.01 milljón ferkílómetrar og íbúafjöldi er um 98 milljónir.

Tímamunur

Egyptaland er  2 klukkustundum á undan Íslandi í nóvember. 

Sími

Hringja til Egyptalands : 00 11 20 + símanúmer.

Tungumálið

Arabíska er hið opinbera tungumál.

Veðurfar

Í nóvembermánuði er meðalhiti á daginn um 23° og fer niður í 14° á kvöldin.

Gjaldmiðillinn

Egypski gjaldmiðillinn er egypskt pund EGP en bandaríski dollarinn er líka víða notaður.

Hraðbankar

Finnast víða og flestir taka við íslenskum kortum. Gætið þess að láta kort aldrei úr augsýn þegar greitt er.

Rafmagn

220 volt

Ónæmisvarnir

Ávallt er ráðlagt að leita læknis, helst 2 mánuðum áður en lagt er í ferðina, til þess að hægt sé að framkvæma nauðsynlegar bólusetningar. Hægt er að fá upplýsingar á netspjalli Heilsuveru.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Valkvæðar skoðunarferðir

Skemmtilegar skoðunarferðir með íslenskri fararstjórn
Sjá úrval ferða í bókunarvél

Gististaðir

Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu
OSZAR »