Pingdom Check
frá7.900 kr.

Í samvinnu við Rómarrölt bjóðum við uppá skemmtilegar og fræðandi skoðunarferðir.

FIMMTUGA OG LAUGARDAGA kl. 17:00

Trastevere hverfið sem er ákaflega líflegt og skemmtilegt. Veitingastaðir og kaffibarir á hverju horni og götulíf fjörlegt. Skoðum tvær helstu kirkjur hverfisins  Santa Maria di Trastevere og Santa Cecilia. Þræðum þröng stræti og kynnumst kynngimagnaðri stemmingu Trastevere hverfisins og margrómuðu veitingastöðum þess. 
Þessi ferð er kjörin til að kynnast matarmenningu Rómverja, heimsækjum þrjá rótgróna staði hverfisins þar sem við fáum að smakka rómverska hrísgrjónabollu með ragúsósu og mozzarella osti, síðan fáum við okkur drykk á hverfisbarnum og komum svo við í lítilli súkkulaðiverksmiðju (lokuð í júlí og ágúst).

Lengd: 2,5 - 3 klst.

OSZAR »